Þjónustukönnun Gallup
Margir óánægðir við sorphirðu í Eyjum
45% óánægð þegar spurt var út í sorphirðu
10 janúar 2018
Eingöngu var spurt út í einn lið er snýr að þjónustu ráðsins og sneri hann að sorphirðu. Þegar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu í tengslum við sorphirðu í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (84%) voru eingöngu 55% ánægð en 45% óánægð. Meðaleinkunn sveitarfélaga á þessari spurningu á skalanum 1 til 5 var 3,6 en einkunn Vestmannaeyjabæjar einungis 3 og því langt undir meðaltali.
Þessi niðurstaða er í samræmi við það sem ráðið hefur áður rætt og full ástæða til að taka hana alvarlega. Því fól ráðið framkvæmdastjóra þegar að boða forsvarsmenn Kubbs sem annast sorphirðu og –meðhöndlun til fundar við ráðið svo fljótt sem verða má.
Eins og þekkt er var sorpbrennslu bæjarins lokað árið 2011 að kröfu Umhverfisstofnunar. Síðan þá hefur bæjarfélagið glímt við mikinn vanda innan málaflokksins og orðið að flytja stóran hluta þess til förgunar um langan veg. Á árinu 2018 er áætlað að tekin verði stór skref í átt að varanlegri lausnum og er þar sérstaklega horft til þess að taka upp brennslu á ný í fullkomnum ofni.
