Það þarf að efla Þorlákshöfn - einokun í sjóflutningum skaðar neitendur.

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um vöruflutninga til og frá Íslandi. Þar bendir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, á að vandi markaðarins snúist ekki aðeins um fákeppni. Hann nefnir ógegnsæja verðlagningu skipafélaganna, rekstrarfyrirkomulagið í Sundahöfn og hversu hægt hafi gengið að byggja upp raunhæfa valkosti fyrir nýja keppinauta. Hans mat er að uppbygging Þorlákshafnar sé lykilatriði til að gæta hagsmuna neytenda.

Morgunblaðið fjallar í dag um fákeppni í sjóflutningum og mikilvægi þess að Þorlákshöfn verði efld til að mæta stöðunni.


Til að það verði gert telur Ólafur tímabært að stjórnvöld, og þá sérstaklega innviðaráðuneytið, beiti sér fyrir þeim breytingum sem Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað kallað eftir. Því miður vinnur ríkisstjórnin núna gegn þeim hagsmunum.

Þorlákshöfn leikur lykilhlutverk í því að koma í veg fyrir einokun stóru skipafélaganna í vörufluttningum til og frá Íslandi. Hún ein skapar raunhæfa samkeppni. Smyril Line Cargo og Torcargo hafa komið sér hér fyrir og bjóða þjónustu sem veitir stærri skipafélögunum samkeppni.

Ólafur Stephensen bendir réttilega á að uppbyggingin í Þorlákshöfn sé ekki bara jákvæð heldur lykilforsenda þess að nýju félögin geti vaxið neytendum til hagsbóta. Stærri og hagkvæmari skip Smyril Line kalla á betri hafnaraðstöðu, en auk þess þarf vegurinn frá höfninni að höfuðborgarsvæðinu að ráða við þungaflutninga. Í umfjölluninni er bent á að Þrengslavegur og Þorlákshafnarvegur séu mjórri, með minna burðarþol og lakari þjónustu en mikilvægar leiðir á suðvesturhorninu. Það setur flutningum frá Þorlákshöfn lakari skilyrði í samkeppninni við Sundahöfn. Það er á ábyrgð ríkisins að færa það til betri vegar, í orðsins fyllstu merkingu.

Þrátt fyrir þetta hefur núverandi ríkisstjórnin ákveðið að ganga gegn hagsmunum neytenda eins og samkeppnisyfirvöld hafa metið þá, og fresta lykilframkvæmdum (til að mynda breytingu á Skarfaskerfskanti sem gegnir lykilhlutverki fyrir Smyril Line) í  Þorlákshöfn og draga úr stuðningi við vöxt hennar.

Að draga úr stuðningi við Þorlákshöfn gengur gegn tilmælum Samkeppniseftirlitsins til stjórnvalda um að vinna gegn fákeppni í sjóflutningum.


Hlutur ríkisins í nýframkvæmdum mun lækka úr 60% í 50% árið 2027 og í 40% frá 2028. Afleiðingin fyrir Þorlákshöfn er skýr: sveitarfélaginu verður gert að ábyrgjast framkvæmdir sem á að gera nýjum keppinautum stóru skipafélaganna kleift að vaxa. Þar með er ætlast til að velferð barna, eldri borgara og fatlaðra verði lögð að veði til að tryggja samkeppni í sjóflutningum.

Þetta er öfug forgangsröðun. Með þessu er ríkisstjórnin að hindra uppbyggingu innviða sem styðja við nýja samkeppni. Þar með er hún að hægja á, og jafnvel að koma í veg fyrir, uppbyggingu valkostanna sem gætu þrýst flutningskostnaði niður. Það gengur þvert á hagsmuni neytenda.

Hér er ekki bara um að ræða hagsmunamál skipafélaga, sveitarfélagsins eða okkar íbúa. Flutningskostnaður skilar sér í kostnaði fyrirtækja og að lokum í vöruverði. Samkeppniseftirlitið staðfesti umfangsmikil samráðsbrot Samskipa við Eimskip á árunum 2008–2013. Frummat sem Analytica vann áætlaði að samráðið hefði kostað íslenskt samfélag tæpa 62 milljarða króna, þar af 26 milljarða í aukinn kostnað neytenda.

Þess vegna skiptir máli að byggja upp fleiri en eina raunhæfa leið inn og út úr landinu. Betri höfn í Þorlákshöfn og greiðari vegtenging eru ekki sérhagsmunamál. Þau eru hluti af því að skapa samkeppni, lækka flutningskostnað og styrkja íslenskt atvinnulíf.

 

Next
Next

Jasmina hefur ekki valdið skaða, en innflytjendastefnan þarf að breytast