Jasmina hefur ekki valdið skaða, en innflytjendastefnan þarf að breytast
Jasmina Vajzovic spyr mig í dag hvaða skaða hún hafi valdið (sjá hér). Ég þekki lítillega til Jasminu frá því að hún var bæjarfulltrúi Frjáls afls í Reykjanesbæ. Ég get svarað af fullri einlægni: Ágæta Jasmina, ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða. Ekki frekar en flestir sem hér á landi búa.
Spurninguna spyr Jasmina í framhaldi af því að ég hef viðrað áhyggjur mínar af stöðu innflytjendamála, sérstaklega fjölgun fólks frá svokölluðum MENAP-ríkjum: Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Afganistan og Pakistan. Ég óttast að ákveðnar neikvæðar samfélagsbreytingar tengist fjölgun íbúa frá þessum svæðum hér á landi.
Í stuttum persónulegum facbooksamskiptum við séra Bjarna Karlsson (prestinn sem gifti mig og konuna mína) varð mér það á að setja alla múslima undir einn hatt. Það hef ég leiðrétt (sjá hér).
Í leiðréttingunni sagði ég meðal annars:
“Ég hef miklar áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda frá ákveðnum svæðum. Sérstaklega frá löndum í Norður-Afríku, Miðausturlöndum og fl. Öfgakennd hugmyndafræði ákveðins hluta þessa fólks hefur fundið sér farveg í trúarsetningu Íslam og andúð á því sem vestrænt er. Ég veit sem er að þetta eru ekki múslimar í heild. Þetta er ákveðin hluti sem kemur óorði á aðra sem aðhyllast sömu trú. Það er rangt að gefa annað í skyn,“
Leiðréttingin breytir þó ekki þeirri skoðun minni að herða eigi lög og reglur um komu fólks frá þessum svæðum hingað til lands.
Við setjum lög og reglur sem ná yfir hópa, ekki einstaklinga. Ríkisborgarar sumra ríkja þurfa vegabréfsáritun til að koma til Íslands en aðrir ekki. Það þýðir ekki að hver einstaklingur sem þarf áritun sé sakaður um eitthvað. Með sama hætti er krafa um strangari innflytjendalöggjöf ekki ásökun á hendur Jasminu.
Eftir stendur: Ég veit ekki til þess að Jasmina hafi valdið neinum skaða, þvert á móti tel hana góða viðbót við samfélagið. Þrátt fyrir það tel ég að herða eigi reglur um innflytjendamál til að bæta hag þeirra sem hér búa.