Auðvitað á að afnema lög um húsmæðraorlof

Alþingi hefur nú í meðförum frumvarp til draga um orlof húsmæðra þar sem lagt er til að þau verði afnumin.  Ég er því fylgjandi að svo verði gert enda er jafnrétti ekki valkvætt.  Jafnrétti felur meðal annars í sér að löggjafinn tryggi jafnan rétt án tillits til sundurgreinanlega breyta svo sem kyns, litarháttar, trúar eða annað.  Lög sem beinlínis ganga gegn þessu ber að afnema.

Þessari skoðun minni til stuðnings höfum við bæjarfulltrúar meirihlutans í Vestmannaeyjum bent á að upphafsorð 1. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla hljóðar svo: 

“Markmið laga þessara er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.”  

Í ákvæðinu eru taldar upp nokkrar leiðir til að ná fram markmiði laganna, m.a. að gæta jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins auk þess að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Ein af þeim leiðum sem nefndar eru til að ná fram markmiði laganna er að bæta sérstaklega stöðu kvenna og auka möguleika þeirra í samfélaginu. Löggjafinn gerir því ráð fyrir að sum úrræði sem gripið er til nýtist konum fremur en körlum. Með hliðsjón af jafnréttissjónarmiðum og grundvallarreglum stjórnskipunarinnar er þó augljóst að slíkum úrræðum verður eingöngu beitt þegar nauðsyn krefur til og að rétta hlut kvenna þar sem á hefur hallað. Verður ekki séð að lög um orlof húsmæðra uppfylli þetta skilyrði enda fá húsfeður og eða ekklar ekki notið til jafns við konur þess orlofs sem lögin kveða á um. Ljóst má því telja að lög um orlof húsmæðra brjóta gegn lögum um jafna stöðu karla og kvenna og grundvallarreglum íslenskrar stjórnskipunar. 

Við höfum einnig bent á að í kjölfar fyrirspurnar sem ég sendi Jafnréttisstofu árið 2007 svaraði Jafnréttisstofa því til að hún teldi líkur á að lög um orlof húsmæðra teljist brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Stofan áréttaði þó jafnframt að það sé Alþingis að afnema hin umræddu lög.  

Rétt er að minna á að á fundi bæjarstjórnar kvenréttindadaginn 19. júní 2008 samþykkti bæjarstjórn ályktun þess efnis að skorað yrði á Alþingi að afnema lög um orlof húsmæðra og það höfum við síðan þá  ítrekað. Í ályktun þess fundar, sem eingöngu var skipaður konum, sagði: 

“Lög um að orlofsnefndir skipuleggi orlof húsmæðra hver í sínu umdæmi og sjái um rekstur orlofsheimila á kostnað bæjarins þykja tímaskekkja.” 

Bæjarstjórn Vestmannaeyja taldi þá -sem nú- að gildandi lög um húsmæðraorlof ekki vera í anda jafnréttis enda taka þau einungis til kvenna.  

Að lokum er rétt að minna að  1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar mælir fyrir um sjálfstjórn sveitarfélaga án þess að tilgreina nánar í hverju sjálfstjórnin felst. Þar því fyrst og fremst um að ræða stefnuyfirlýsingu stjórnarskrárgjafans um að sveitarfélög skuli njóta sjálfstjórnar.  Séð í því ljósi verður að telja brýnt að löggjafinn stígi varlega fram í löggjöf sem bindur hendur sveitarfélaga og slíkt sé fyrst og fremst gert í málum sem skipta þjóðarheildina máli.  Á sama hátt er mikilvægt að löggjafinn sé vakandi fyrir því að afnema útelt lög þegar sá tími kemur að málefni séu hætt að skipta þjóðarheild máli. 

Við Bæjarfulltrúar meirihlutans erum því einbeitt í vilja okkar til  að hafa jafnrétti að leiðarljósi í öllu okkar starfi. Með það að leiðarljósi höfum við hvatt til þess að lög um orlof húsmæðra verði afnumin.

Previous
Previous

Staða siglinga þetta vorið - nýjasta dýptarmælinging

Next
Next

Litbrigði náttúrunar, samkynhneigð og sálfræðilegar vangaveltur