Þetta er Saied Reza Ameli. Einhverjum brandarköllum þykir það góð hugmynd að hann sé fenginn til að ræða hvernig vestræn menning nálgast íslam og meinta íslamófóbíu á ráðstefnu í Bretlandi 13. des. næstkomandi.
Ameli var framkvæmdastjóri Æðsta ráðs menningarbyltingarinnar í Íran á árunum 2019–2023. Ráðið þrengdi mjög að réttindum kvenna meðal annars með stefnu um skylduhijab og aðrar strangar takmarkanir á klæðaburði kvenna. Þessi gaur sat jafnframt í "Æðsta ráði netheima", sem mótar stefnu stjórnvalda um netið. Þar var tekin upp ritskoðun, jafnvel á einkaskilaboðum, samhliða því sem tjáningafrelsi voru settar strangar skorður. Kanada setti þenna peyja á viðurlagalista árið 2023 vegna mannréttindabrota í Íran. Hann er samt á leið til Bretalands til að ræða það að sem kallað er íslamafóbía.
Þessi náungi er ekki með smávægileg frávik ferilskrá. Hann var aðstoðaryfirmaður herdeildar Byltingarvarðarins á níunda áratugnum og framkvæmdastjóri æðsta ráðs menningarbyltingarinnar í Íran á árunum 2019 til 2023.
Þetta er maður með pólitíska ábyrgð í stjórnkerfi sem hefur þrengt að réttindum kvenna og frelsi almennings. Þess vegna hlýtur að vakna spurning um dómgreind þeirra sem bjóða honum að tala um fordóma Vesturlanda gagnvart íslam án þess að gera þessa "ferilskrá" að jafn mikilvægu umræðuefni.
Mannréttindi verða ekki trúverðugt umræðuefni þegar þau eru aðeins notuð til að gagnrýna Vesturlönd. Þau verða að gilda líka þegar stjórnvöld skerða þau á forsendum Íslam.
Við eigum að hafna svona sendingum til vesturlandanna. Við eigum ekki að mæta óumburðarlyndi með umburðarlyndi.