Það er magnað að á fyrstu 10 mánuðum ársins fjölgaði kaupsamningum um fullbúnar íbúðir í Þorlákshöfn um 71%. Það gerist á þeim tíma sem fasteignamarkaðurinn víða er nánast botnfrosinn.
Ölfus hefur vaxið hratt. Íbúum fjölgaði um 175 á einu ári og voru 3.114 í september. En er mikill vöxtur fyrirsjáanlegur. Samkvæmt talningu HMS eru núna 274 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu, hlutfallslega fleiri en í nokkru öðru sveitarfélagi landsins. Þetta eru ekki bara tölur á blaði. Þetta eru fjölskyldur, nýir nágrannar og meiri kraftur í samfélaginu okkar.
Mikið hefur verið byggt af hagstæðum íbúðum fyrir fjölskyldufólk og viðbrögðin hafa verið sterk.
Samhliða íbúðabyggðinni er atvinnulífið að taka stór skref. First Water hefur samið við Ístak um næsta áfanga uppbyggingar sinnar í Þorlákshöfn, sem mun tvöfalda framleiðslugetu fyrsta áfanga úr 5.000 í 10.000 tonn á ári. Thor landeldi hefur afhent hundruð þúsunda seiða og byggir upp starfsemi sem getur framleitt allt að fjórar milljónir seiða árlega. Þá styttist nú í fyrstu slátrun á fullöldum laxi hjá þeim. Skipafélögin tvö vaxa hratt og bjóða nú upp á 5 ferðir í Evrópusiglingum á viku. Sérsteypan, Ryðvarnarskálinn, Sólhús, Bónus, Dregg, H.Hauksson og fleiri fyrirtæki er nú þegar komin af stað með byggingu húsnæðis fyrir starfsemi sína í Þorlákshöfn. Þetta eru fjárfestingar, sérhæfð störf og ný verðmætasköpun. Þarna verða framtíðarstörf fyrir íbúa framtíðarinnar.
Þá eru fleiri stór verkefni til skoðunar, meðal annars í gagnaversuppbyggingu. Þau eru á ólíkum stigum og ekkert sjálfgefið að öll verði að veruleika. En áhuginn á Þorlákshöfn segir okkur að staðsetningin, höfnin, landrýmið og framtíðarmöguleikarnir vekja athygli fjárfesta. Nú þarf að vinna skipulega að því að skapa rétt skilyrði, tryggja innviði og gæta þess að vöxturinn gagnist samfélaginu öllu.
Við höfum ástæðu til að vera stolt. En stolt eitt og sér byggir hvorki heimili né hafnir. Það sem skiptir máli er að við höfum skapað samfélag þar sem fólk vill búa, fyrirtæki vilja fjárfesta og ný verkefni eiga möguleika á að verða að veruleika. Í þjónustukönnun Gallup fyrir árið 2025 mældist ánægja íbúa í Ölfusi mest á níu af þrettán þáttum í samanburði við sambærileg sveitarfélög. Það er árangur sem minnir okkur á að uppbygging snýst ekki bara um steypu og stál; hún snýst um fólk og lífsgæði.
Við höfum ekki náð áfangastað. Við erum hins vegar á réttri leið, og það er full ástæða til að vera stolt af því.