Fréttastjóri DV er örugglega fínn peyi - Baltasar svaraði fullyrðingunum hans áður en þær voru settar fram
Nú fyrir helgi skrifaði fréttastjóri DV hvassan pistil þar sem hann sendir mér og Vestmannaeyjum tóninn (sjá hér - http://www.dv.is/blogg/ingi-freyr-vilhjalmsson/2014/7/4/4264-thjodrikid-vestmannaeyjar/). Þar segir hann að það sé ekkert sérstakt við Vestmannaeyjar. Þær séu menningarlegt núll og við of fámenn til að vera að gera okkur svona breið. Við séum samt ágæt í að...
...veiða fisk.
Ég þekki ekki fréttastjórann. Held að hann sé fínn peyji. Þess vegna finn ég til með honum að fara svona villu vegar. Auðvitað eru Vestmannaeyjar sérstakar. Hvorki betri né verri en aðrir sambærilegir staðir, en sérstakar. Á sama hátt þykir mér Eyjamenn sérstakir. Hvorki betri né verri en aðrir, en sérstakir. Orð mín þykja fréttastjóranum og skoðanasystkinum hans ekki merkileg. Svo vísað sé í pistilinn þá segir hann orð mín ala á heimsku og ég tali eins og ég sé vanviti. Svo líkir hann mér við nasista.
Orð mín mega sín því lítils. Ég er líka bara af landsbyggðinni og ætti sjálfsagt að vera að veiða fisk – við gerum það þó vel samkvæmt skrifum fréttastjórans. Annað fólk er þó vonandi í meiri metum. Ef til vill getur einhver góður og vandaður maður sannfært Inga Frey um að Vestmannaeyjar séu sérstakar.
Þess vegna langar mig að að gefa Baltasar Kormáki orðið. Hann er ekki bara framúrskarandi listamaður heldur vandaður og góður maður, eftir því sem ég þekki hann. Þannig er hann vonandi betur til þess fallin að meta þetta hlutlægt en ég. Baltasar svaraði einmitt fullyrðingum fréttastjórans löngu áður en hann skrifaði pistilinn.
Þegar Baltasar tók við Eddu sem leikstjóri ársins sagði hann þetta um Vestmannaeyjar og Eyjamenn:
"Fyrst og fremst langar mig að senda Vestmannaeyingum kveðju. Það var frábært að gera þessa mynd. Höfðingsskapur, gestristni og það er eitthvað sérstakt í kakter Vestmannaeyinga sem að hrífur mig alveg rosalega. Þetta er eins og Íslendingur sem hefur verið tálgaður, það er bara það besta eftir hjá honum."
Nú má vel vera að Ingi Freyr telji Baltasar líka vera eins og nasisti sem talar eins og vanviti. Hann dvelur jú löngum stundum á heimili þeirra hjóna á Hofi í Skagafirði og því með öllu óvíst að fréttastjórinn telji hann marktækan í umræðu um landsbyggðina.