Hver er blindur? Tölvupóstur til ritstjóra Fréttablaðsins

Í Fréttablaðinu í dag skrifar ritsjóri þess leiðara undir heitinu "Blindan á stóru myndina".  Þar fjallar hann um mengun og sorporkustöð þá sem starfrækt var í Vestmannaeyjum.  Sérstaklega leggur hann út frá orðum mínum um umhverfistöffaramennsku sem finna má hér neðar á þessari síðu. Ekki veit ég hvort hægt sé að tala um blindu hjá ritstjóranum þótt hann fari með rangt mál í þessum skrifum.  Sennilega hefur hann einfaldlega byggt skrif sín á þeirri umfjöllun og umhverfistöffaramennsku sem átti sér stað þegar málið fór sem hæst.  Svo mikið er amk. víst að hvað sem ritstjórinn segir í leiðara sínum þá er sorporkustöðin í Vestmannaeyjum enn með fullt starfsleyfi og var ekki lokað vegna mengunar.  Ég sá mig því tilneyddann að skrifa honum tölvupóst og leiðrétta rangfærslur hjá honum.  Almennt birtir maður ekki tölvupósta til fólks en þar sem orð hans og rangfærslur hafa nú lifað í heilan vinnudag án þess að ég hafi getað brugðist við (Fréttablaðinu er ekki dreift í hús í Vestmannaeyjum) ælta ég að...

...gera það núna.

 

Ágæti Ólafur Stephensen

Athygli mín hefur verið vakin á skrifum þínum í Fréttablaðinu í dag undir orðunum „Blindan á stóru myndina“.  Þar er látið að því liggja að rekstri sorporkustöðvar í Vestmannaeyjum hafi verið hætt vegna díoxínmengunar. Meira að segja fullyrðir þú að sorporkustöðin hafi verið „svipt starfsleyfi“.  Það er ekki rétt.  Reyndar var henni ekki lokað vegna mengunar og hefur hún enn til dagsins í dag fullt og óheft starfsleyfi sem rennur ekki út fyrr en 1.2 2016 eins og staðfest er í eftirlitsskýrslu Umhverfisstofnunar dagsettu 1.11 2013.  Rekstri hennar var hætt þar sem ekki var hægt að eiga samstarf við þau yfirvöld sem nauðsynlegt er að eiga samstarf við í vandasömum rekstri sem þeim sem þar um ræðir.

Ég sé mig tilknúinn til að leiðrétta nokkrar aðrar rangfærslur í skrifum þínum.  Í starfsleyfi sorporkustöðvar Vestmannaeyja var ekki kveðið á um útblástur sorpbrennslustöðva hvað díoxín varðar og engar kröfur á losun díoxíns í andrúmslofti.  Engu að síður var díoxín mælt  í útblæstri árin 2007 (8,4 ng/m3) og 2011 (12,5 ng/m3).  Sérfróðir aðilar settu nú reyndar alltaf fyrirvara við seinni mælinguna og tók UST undir það og heimilaði að framkvæmd yrði ný mæling.  Af því varð þó ekki þar sem ákveðið var í millitíðinni að láta af brennslu og svona mæling er dýr.  Látum það því liggja á milli hluta.  Það er því rangt að lokun sorporkustöðvarinnar hafi verið vegna díoxínmengunar.

 Vegna áhuga þíns á mengun í Vestmannaeyjum og víðar á landsbyggðinni langar mig einnig að benda þér á eftirfarandi.  Ákveðið var að mæla magn díoxíns í jarðvegi víðsvegar um landið og kom í ljós að magn díoxíns var við lægstu aðgerðarmörk við sorpbrennslustöðvarnar bæði hér í Eyjum og á Ísafirði.  Sendi þér hér vefkrækju á síðu hjá UST þar sem þú getur sé viðmiðunartölur en engar reglur eru til hér á landi og var því stuðst við þýska staðla í þessu tilfelli. http://www.ust.is/umhverfisstofnun/umraedan/grein/2012/03/30/Dioxin-i-jardvegi/     Af þessu sést að ekki hefur verið um að ræða uppsöfnun díoxíns að neinu marki þrátt fyrir áratuga rekstur sorporkustöðva .  Eins og þú sérð þá er magnið undir þeim mörkum að þurfi að skipta um jarðveg jafnvel þótt um leikvöll fyrir börn hefði verið að ræða, hvað þá sorporkustöð.

Ég vil einnig benda þér á að það voru tekin hársýni úr þeim starfsmönnum sem höfðu hvað lengstan starfsaldur þarna en þær niðurstöður einhverra hluta vegna aldrei birtar.  Samkævmt upplýsingum frá þessum starfsmönnum mældist ekki díoxín í líkama þeirra umfram það sem eðlilegt getur talist og almennt gerist.  Ekki veit ég afhverju þessar niðurstöður fóru ekki í loftið, ekki frekar en fréttir af því að sorporkustöðin í Eyjum er enn með óheft starfsleyfi.  Ef til vill hafa slíkar fréttir ekki passað við „stóru myndina“.  Því verða aðrir að svara.

Eins og þú bendir á er díoxín er stórhættulegt efni.  Enn hefur þó ekki hefur verið sýnt fram á að mengun frá sorporkustöðinni hér í Eyjum hafi haft nein áhrif á lífríki á þeim áratugum sem hún starfaði.  Ég tel líklegt að slíku sé einnig fyrir að fara annarstaðar á okkar góða og fallega landi.  Skemmst er að minnast þess að bóndi sem búinn var að slátra bústofninum í Engidal fékk  seinna þær niðurstöður að ekkert amaði að gróðri né heldur bústofni. 

Við skulum því gæta vel og vandlega að því að menga ekki umhverfi okkar, hvorki með röngum fréttum né losun þrávirkra efna.

Ekki veit ég hvaða stefnu Fréttablaðið hefur þegar kemur að leiðréttingu en almennt hygg ég að fjölmiðlafólk komi leiðréttingu á framfæri þegar það fer með rangt mál.

 Með vinsemd og virðingu

Elliði Vignisson

Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum

Previous
Previous

Opið bréf til Eyjamanna og vina um allt land

Next
Next

Miðhverfir staðir - Heiðurslaun listamanna, ljóð Hannesar Péturssonar og umræða um að leggja af byggð í Eyjum