Þú vinnur til 11:41, bara fyrir sköttum.
Launamaður með 826 þúsund krónur í mánaðarlaun greiðir um 325 þúsund krónur í skatta og opinber gjöld, í hverjum einasta mánuði. Það eru tæpar fjórar milljónir á ári og um 41% af laununum.
Af launum upp á 826.00 greiðir þú hátt í 4 milljónir á ári í skatta.
Af heildarlaunum upp á 826.000 heldur viðkomandi eftir 467.844 kr. Það jafnast á við að hann vinni bara fyrir sköttum frá því á nýársdag til 3o. maí, ár hvert. Eða að launamaður sem vinnur frá 08 til 17:00 vinni til kl. 11:41 - bara fyrir sköttunum.
Þrátt fyrir að þú vinnir á hverjum degi framundir hádegi bara fyrir sköttum þá á samt að hækka skattana á þig.
Fyrst er tekjuskatturinn tekinn af laununum. Síðan er skattur lagður á matinn, bensínið, rafmagnið, símaþjónustuna, veitingarnar og nánast allt sem við kaupum. Við greiðum skatt þegar við öflum tekna, þegar við eyðum þeim, þegar við spörum og meira að segja þegar við föllum frá og skiljum eitthvað eftir handa börnunum okkar.
Ríkið er með í hverju einasta fjárhagslega skrefi sem við stígum, og réttir alltaf fram lófann.
Skattareiknivél Viðskiptaráðs dregur þessa skattheimtu fram í dagsljósið. Hún sýnir líka hvers vegna stjórnvöld kjósa flókið skattkerfi. Þegar skattarnir eru faldir í eldsneytisverði, vörugjaldi, virðisaukaskatti og alls konar smágjöldum verður auðveldara að sannfæra fólk um að einn skattur enn skipti litlu máli.
En margt smátt gerir eitt stórt. Mjög stórt, og það er enn að stækka.
Nú ætlar ríkisstjórnin enn að bæta í. Kílómetragjaldið á að skila fjórum milljörðum til viðbótar, áfengis- og kolefnisgjöld hækka, persónuafsláttur og skattþrep verða skert að raunvirði og nýjar álögur eru lagðar á banka, ferðaþjónustu og baðlón. Auðvitað lendir reikningurinn að lokum hjá almenningi.
Ríkisstjórnin talar eins og peningar ríkisins komi úr sérstakri uppsprettu. Það gera þeir ekki. Hver einasta króna kemur úr vasa fólks og fyrirtækja. Úr vösunum þínum.
Vandinn er ekki að þjóðin greiði ekkert til samfélagsins. Vandinn er að stjórnvöld virðast aldrei telja sig hafa fengið nóg.