175 nýjar ástæður
Fyrir einu ári voru íbúar Ölfuss 2.939. Nú eru þeir 3.114. Okkur hefur því fjölgað um 175 á einu ári, tæplega 6%. Áberandi er hversu margt ungt fólk með börn velur Ölfus. Þessi grein í mogganum sýnir þann áhuga (Grein á moggavefnum í dag)
Börnum fjölgar hratt í Ölfusi. Þessi mynd sýnir hvernig 1500 m2 stækkun á grunnskólanum tengir þá mikilvægu byggingu við íþróttahúsið.
Þetta eru ekki bara tölur. Þetta eru 175 fleiri einstaklingar sem eiga hér heimili, taka þátt í samfélaginu og byggja framtíð sína með okkur. Nýir nágrannar sem við bjóðum hjartanlega velkomna.
Slík fjölgun verður ekki af sjálfu sér. Ný heimili rísa, Hraunheimar hafa tekið til starfa, leikskóladvöl er gjaldfrjáls í allt að 36 stundir og stækkun grunnskólans er í undirbúningi. Ný barnvæn hverfi eru skipulögð og umsvifin við höfnina aukast ár frá ári.
Fyrirtæki fjárfesta í sveitarfélaginu, höfnin er mikilli sókn, Bónus er að hefja byggingu nýrrar verslunar og miðbærinn tekur á sig mynd. Þorlákshöfn er að taka skrefið úr þorpi í bæ.
Öflugur rekstur og sterk fjárhagsstaða sveitarfélagsins gera okkur kleift að mæta vextinum með áframhaldandi uppbyggingu skóla, gatna, veitna, hafnar og þjónustu fyrir fólk á öllum aldri.
Tæplega 6% fjölgun á einu ári er gleðiefni, en líka verkefnalisti. Það fylgir því ábyrgð að vaxa. Þjónustan þarf að vaxa með samfélaginu og allir íbúar, nýir sem rótgrónir, þurfa að finna að þeir eigi hér heima. Að þeir séu hluti af samfélagi í sókn.
Markmiðið er ekki að verða stærst. Markmiðið er að vera meðal bestu sveitarfélaga landsins til að búa í, ala upp börn, starfa og reka fyrirtæki.
Okkur hefur fjölgað um 175 á einu ári.
Það eru 175 nýjar ástæður til að halda áfram.