Ódýrasta og besta þjónustan, og það er ekki tilviljun.
Fjárhagsáætlun snýst um forgangsröðun. Núna fyrir skömmu lagði bæjarráð línurnar hér í Ölfusi. Markmiðið er skýrt: að veita áfram framúrskarandi þjónustu en hlífa íbúum við skattbyrði og halda gjaldskrám í lágmarki. Samhliða verða innviðir byggðir upp.
Með fjárhagsáætlunar 2027 er gengið enn lengra en áður hefur verið gert í þeim tilgangi veita framúrskarandi þjónustu en halda sköttum og gjöldum lágum. Þannig verður útsvari haldið óbreyttu, fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkaður úr 0,20% í 0,19% og engar gjaldskrár hækkaðar um meira 2,5%. Það er undir verðbólgu og þar með undir þeirri hækkun sem liggur fyrir í útgjöldum sveitarfélagsins. Þetta er hægt á meðan verðmætasköpun stendur undir velferðinni.
Eins og fyrr er þjónusta við barnafjölskyldur í forgangi Ölfusi. Er þar byggt ofan á þá staðreynd að frá 1. mars 2026 hafa allt að 36 stundir á viku í leikskóla verið gjaldfrjálsar, án auka kostnaðar á viðbótartíma. Þar með lækkuðu leikskólagjöld um 31.680 kr. á mánuði. Yfir árið gerir það hvorki meira né minna en 348.480 kr. fyrir hvert barn. Það jafngildir því að fólk í öðru skattþrepi fái aukalega 585.000 í ráðstöfunartekjur á ári. Það munar um minna.
Ný samanburðarskýrsla (sjá hér: Hvað kostar barn?) sýnir að dæmigerð fjölskylda með þriggja ára og átta ára barn greiðir minnst í Ölfusi af öllum þeim sveitarfélögum sem voru skoðuð í nýlegri úttekt. Það munaði hvorki meira né minna en tæplega 198 þúsund krónur á ári eftir systkinaafslátt og frístundastyrki á Ölfusi og því sveitarfélagi sem var næst lægst.
Þjónustukönnun Gallup sýnir jafnframt að Ölfus mælist yfir landsmeðaltali í öllum 13 þjónustuþáttum og efst meðal sambærilegra sveitarfélaga í níu þeirra.
Ég fullyrði; það er hvergi betra að alla upp barn en í Ölfusi. Við erum í raun barnvænt samfélag.
Hvergir er ódýrara að vera með barn á leikskóla (36 tímar gjaldfrjálsir, án álags á viðbótartíma)
Hvergi er meiri ánægja með grunnskóla
Hvergi er meiri ánægja með leikskóla
Hvergi er meiri ánægja með þjónustu við börn
Hvergi er meiri ánægja með íþróttir
Hvergi er meiri ánægja með almenn búsetugæði
Hvergi er meiri ánægja með menningarmál
Hvergi er meiri ánægja með þjónustu
Hvergi er meiri ánægja með málefni fatlaðra
Hvergir er meiri ánægja með skipulagsmál
Þetta eru niðurstöður sem gleðja okkur en minna okkur líka á að halda áfram að veita góða þjónustu.
Við getum ekki stjórnað öllum kostnaðarhækkunum, en við getum valið hvernig gjöld sveitarfélagsins þróast og reynt að skapa verðmæti til að mæta auknum kostnaði við aukna velferð.
Sá tónn verður enn skýrari með fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.