Þjóðin á fyrirtækið. Svarið henni.
„Það er ekki frá miklu að segja.“
Þannig svarar stjórnarformaður Landsvirkjunar þegar forstjóri fyrirtækisins til sautján ára hættir og ágreiningur við stjórnina kemur við sögu. Hún bætir við að fólk sé eðlilega ekki alltaf sammála um allt.
Þetta á sem sagt að duga okkur eigendum fyrirtækisins. Þjóðinni sjálfri.
Það er einhver furðuleg meinloka ef stjórnin telur að okkur komi ekki við hvers vegna samstarf hennar og forstjórans endar með þessum hætti. Fjölmiðlar segja frá “ágreiningi um stjórnarhætti”. Þau orð kalla á skýringar. Um hvað var deilt? Hvaða ákvarðanir voru undir? Hvaða hagsmunir réðu för?
Fjármálaráðherra lýsti Landsvirkjun í mars sem einu af krúnudjásnum ríkisins og orkunni sem lífæð íslensks hagkerfis. Það var vel mælt. En slíku tali verður að fylgja ábyrgð þegar á reynir. Krúnudjásn þjóðarinnar verður ekki rekið í reykfylltum bakherbergjum.
Fjármálaráðherra skipar stjórn Landsvirkjunar. Hann ber ábyrgð. Ráðherrann getur ekki látið málið reka á reiðanum og vonað að umræðan fjari út. Honum ber að krefja stjó rnina skýringa og tryggja að almenningur fái efnisleg svör. Þjóðin er komin með nóg af tómlæti ráðherra.
Þjóðin á Landsvirkjun. Hún á að fá svör.