Er þetta virkilega það sem Samfylkingin vill bjóða Ölfusingum?“
Ég hef verið lengi í pólitík og geri mér fulla grein fyrir því að gagnrýni fylgir starfinu. Hún á líka að gera það. Málefnaleg gagnrýni er holl og nauðsynleg í lýðræðissamfélagi. En það er eitthvað annað þegar pólitísk barátta breytist í hreint níð. Verst er hversu margir verða þá fyrir barðinu, ekki síst fjölskyldur þeirra sem ráðist er að. Sjálfur þurka ég bara leðjuna af mér og held áfram. Ég held að kjósendum líki ekki framganga Samfylkingarinnar eins og hún birtist í dag.
Ný grein (Sjá hér) eftir starfsmann þingflokks Samfylkingarinnar og fyrrverandi blaðamann á Heimildinni sýnir því miður nákvæmlega hvar barátta Samfylkingarinnar hér í Ölfusi er stödd. Þegar ráðherrar, þingmenn og landsmálin eru farin að snúast um að ráðast persónulega á einstaklinga í litlu sveitarfélagi þá er eitthvað farið verulega úrskeiðis.
Ég hef engan áhuga á þannig stjórnmálum. Áhrifum mínum mun ég áfram beita til að ræða framtíð Ölfus, uppbyggingu samfélagsins og þau verkefni sem raunverulega skipta íbúa máli. Ekki til að níða fólk.
Og það skiptir mig máli að segja þetta skýrt: Ég ber fullt traust til bæjarstjóraefnis Samfylkingingarinnar, hennar Bryndísar Gunnlaugsdóttur. Ég mun aldrei taka þátt í persónulegum árásum gegn henni eða öðrum frambjóðendum, sama hversu harkaleg pólitíkin verður. Það er ekki þannig pólitík sem við hjá D-listanum stundum.
Kjósendur í Ölfusi eiga betra skilið en þetta.