Eyjabíó fer vel af stað

Eftir langt hlé er nú aftur hafinn rekstur kvikmyndahúss í Vestmannaeyjum.  Fyrstu skrefin lofa góðu og á þeim stutta tíma sem er liðinn frá því að Eyjabíó opnaði hafa á annað þúsund gestir sótt það heim. 

Þöglu myndirnar fengu líf

Saga kvikmyndasýninga í Vestmannaeyjum er nokkuð merkileg.  Hún spannar allt aftur til ársins 1917 þegar þeir Sigurjón Högnason frá Baldurshaga og Arnbjörn Ólafsson á Reyni keyptu húsið Borg og komu þar á fót kvikmyndarekstri.  Hvergi skyldi þar gefið eftir í heimsborgarabragnum og létu þeir félagar skrifa stórum stöfum „„Biograph Theatre — Moving Pictures“ á vestur gafl hússins.  Við tjaldið var komið upp forláta píanói til að ljá þöglu myndunum líf.

„Jón, Jón, passaðu börnin.“

Síðan þá hafa kvikmyndasýningar verið á nokkrum stöðum í bænum svo sem í Alþýðuhúsinu, Nýja-Bíó (þar sem nú er Hótel Vestmannaeyjar), Samkomuhúsinu/Höllinni (Þar sem nú er kirkja Hvítasunnusafnaðarins) og í Félagsheimilinu við Heiðaveg (Þar sem nú er menningarhúsið Kvika).  Fyrsta myndin sem sýnd var í Eyjum hét „Zirli“ sem var skv. Vísi „Ástarsjónleikur í 3 þáttum.“  Hrifningin var mikil og fólk lifði sig sannarlega inn í myndirnar.  Fræg er sagan þegar lest kom æðandi til móts við myndavélina eins og þær ætluðu út úr tjaldinu og kona ein kallaði upp yfir sig: „Jón, Jón, passaðu börnin!“.  Í kvöld verður sýnd kvikmyndin Transformers í Eyjabíóinu.  Þótt tæknin sé margföld er nú samt ekki víst að innlifunin verði jafn sterk.

Eitt flottasta bíó á landinu.

Hið nýja bíó sem hlotið hefur nafnið „Eyjabíó er í alla staði hið glæsilegasta.  Eigandi þess, Axel Ingi Viðarsson, tók í upphafi þá ákvörðun að ekki myndi þýða að bjóða upp á neitt annað en aðstöðu sem jafnast á við það besta hér á landi.  Á sama hátt þyrfti ætíð að vera með nýjar myndir á sama tíma og þær eru fyrst sýndar í Reykjavík.  Bíóið er búið fullkomnum digital sýningarbúnaði frá Christie og hljóðbúnaðurinn er frá Dolby Digital.

Kvika, glæsileg aðstaða.

Vestmannaeyjabær á hins vegar alla aðstöðu og hefur nú með öllu endurnýjað húsið sjálft sem hlotið hefur nafnið Kvika.  Meðal þess sem gert hefur verið er að setja lyftu í húsið, nýtt loftræstikerfi, ný gólfefni á allt húsið, nýjan neyðarútgang, nýja félagsaðstöðu fyrir félag eldri borgara á 3. hæðina, hækka pall í sýningasal, ný sæti í sýningasal, endurbætta hljóðvist og margt fl.

Eyjamenn kunna vel að meta.

Það er ánægjulegt fyrir Vestmannaeyjabæ að geta hlúð samtímis að menningu og afþreyingu eins og gert var með framkvæmdum við Kviku.  Í gegnum tíðina hafa Eyjamenn og þá ekki síst börn og unglingar kvartað sáran undan því að ekki sé hér bíó.  Það kemur því ekki sérstakleg á óvart hversu vel Eyjamenn á öllum aldri hafa tekið hinu nýja bíói.

Sterk staða

Vestmannaeyjar standa sterkt um þessar mundir.  Á sama tíma og mikill hugur er í atvinnulífinu og gríðarlegar fjárfestingar í framtíðaratvinnutækifærum hefur verið að byggjast upp öflug þjónusta bæði á vegum bæjarfélagsins og annara aðila.  Afþreying á borð við bíó er kærkomin viðbót í okkar góðu flóru.

Að lokum er rétt að minna á vefsíðu bíósins „eyjabio.is“ en þar er hægt að finna allar upplýsingar um sýningatíma, kvikmyndaframboð og margt fl.

Previous
Previous

Góðar fréttir

Next
Next

Athyglisverð tilraun með tvíbytnu