Framtíðin mætt í skólann

Það er fátt ánægjulegra fyrir sveitarfélag en að sjá börnunum fjölga. Haustið 2020 voru grunnskólanemendur í Ölfusi 293. Nú, sex árum síðar, eru þeir 352. Fjölgunin nemur 59 nemendum, eða 20%.

Myndin sýnir þá stöðugu fjölgun sem er á nemendum í Ölfusi.


Þetta eru auðvitað ekki bara tölur í súluriti. Þetta eru 59 börn til viðbótar með skólatöskur, drauma, hæfileika og framtíð. Þau færa líf í skólastofurnar, kraft á leikvellina og bjartsýni inn í samfélagið. Því framtíð hvers samfélags er öðrum þræði fólgin í því að börnum fjölgi, og að þau fái gott umhverfi til að vaxa og dafna.

Mest hefur fjölgunin orðið í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Þar hefur nemendum fjölgað úr 248 í 299, eða um 51. Nemendum úr Ölfusi sem sækja Grunnskólann í Hveragerði hefur jafnframt fjölgað úr 36 í 46. Sjö nemendur sækja nú grunnskóla í Árborg.

Vöxtur af þessu tagi gerist ekki í tómarúmi. Hann endurspeglar að ungar fjölskyldur sjá framtíð sína í Ölfusi og treysta samfélaginu fyrir því dýrmætasta sem þær eiga – börnunum sínum. Það er líklega ein sterkasta traustsyfirlýsing sem nokkurt sveitarfélag getur fengið.

Það er því sérstaklega ánægjulegt að fjölgunin fari saman við mikla ánægju með þjónustuna. Í nýlegri þjónustukönnun Gallup var Ölfus í fremstu röð sambærilegra sveitarfélaga. Þar mældist sérstaklega mikil ánægja með þjónustu við börn og fjölskyldur, grunnskólana, leikskólana og aðstöðu til íþróttaiðkunar.


Slíkur árangur verður ekki til af sjálfu sér. Hann er fyrst og fremst verk öflugs starfsfólks sem mætir börnunum okkar á hverjum degi af fagmennsku, hlýju og metnaði. Hann byggist líka á góðu samstarfi heimila, skóla og sveitarfélags. Fyrir það ber að þakka.

En fjölgun barna kallar jafnframt á að við höldum áfram að horfa fram á veginn. Við megum ekki láta góðan árangur verða að ástæðu til að slaka á. Þvert á móti þarf að tryggja að húsnæði, mönnun og þjónusta haldi í við fjölgunina.

Þess vegna er umfangsmikil viðbygging við Grunnskólann í Þorlákshöfn ekki lengur stefna heldur verkleg framkvæmd. Hún verður um 1.500 fermetrar, hönnuð fyrir allt að 150 nemendur og mun stórbæta aðstöðu til almennrar kennslu, list- og verkgreina, náttúrufræða, frístundar og stuðningsþjónustu. Þar er ekki aðeins verið að leysa húsnæðisþörf dagsins í dag heldur undirbúa skólann fyrir áframhaldandi vöxt og skapa svigrúm til skólaþróunar í breyttum heimi.

Myndin sýnir 1500m2 viðbyggingu við grunnskólann sem nú er unnið að og mun ekki síst gjörbreyta tækifærum til skólaþróunar.

Fyrir kosningar ío vor var áhersla á að halda áfram markvissri uppbyggingu í skóla- og frístundastarfi og að stýra vextinum, en láta hann ekki stýra okkur. Markmiðið er heildstæðari og faglegri þjónusta sem mætir þörfum barna og fjölskyldna allan daginn og allt árið.

Þessu loforði þarf nú að fylgja eftir af festu. Fjölgunin sýnir að þörfin er raunveruleg og fer vaxandi.

Stóra verkefnið fram undan er því tvíþætt: að mæta fjölguninni með réttum innviðum og varðveita um leið þau miklu gæði sem íbúar segjast upplifa. Það gerum við með skýrri forgangsröðun, ábyrgri fjármálastjórn og áframhaldandi traustu samstarfi við starfsfólk, foreldra og börnin sjálf.

Það er sannarlega ástæða til að fagna þessum 352 nemendum. Þeir eru ekki aðeins nemendur þessa skólaárs.

Þeir eru framtíð Ölfuss.

Next
Next

Þjóðin sagði Nei! Hvað svo?