Grunnskólinn í Þorlákshöfn toppar bæði ánægju og árangur
Það eru samfélög sem tala um að setja börnin í fyrsta sæti. Svo eru til samfélög sem gera það í raun. Ölfus tilheyrir þeim síðarnefndu. Þar er samfélag sem er ríkt af fólki sem leggur nótt við nýtan dag til að ná árangri fyrir börnin.
Grunnskólinn í Þorlákshöfn er flaggskipið í þjónustu við börn í sveitarfélaginu. Skólinn er einstakur. Viðmót starfsmanna er hlýtt, fagmennskan rík, aðbúnaður góður og þessi árangur sést skýrt í velferð og námsárangri barnanna.
Nýlega var birt könnun Gallups sem mældi ánægju með ýmsa þjónustuþætti sveitarfélagsins. Af samanburðarsveitarfélögum var Sveitarfélagið Ölfus hæst á 9 af 12 þjónustuþáttum. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá mikla ánægju með grunnskóla sveitarfélagsins. Þar mælist ánægja íbúa mest á landinu öllu.
Hvergi á landinu mælist meiri ánægja með þjónustu grunnskóla en í Ölfusi.
Það er ekki tilviljun að ánægja með þjónustu grunnskólans mælist mest á landinu þegar árangurinn er jafn sterkur og raun ber vitni. Ný skýrsla menntamálaráðherra (sjá hér) sýnir enn betur hversu stolt við megum vera með skólann okkar. Þar kemur fram að nemendur úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn standa sig einstaklega vel. Sérstaklega vekur athygli árangur þeirra sem fóru í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Þar voru nemendur úr Þorlákshöfn með 8,2 í vegnu meðaltali við útskrift úr skólanum. Það er hæsta niðurstaðan í þeim samanburði sem birtur er fyrir FSu.
Nemendur í FSU sem koma úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn standa sig meðal annars framúrskarandi í íslensku og stærðfræði.
Árangur næst ekki af sjálfu sér. Á bak við árangur er vinna, áhugi, vilji og svo margt annað. Í árangri sem þessum skipta kennarar og annað starfsfólk sköpum. Þá skiptir einnig miklu sú áratuga hefð samfélagsins hér að fjárfesta í börnum sínum og að foreldrar, starfsfólk og samfélagið allt rói í sömu átt.
Auðvitað er svigrúm til að gera gott enn betra. Við vitum til dæmis að sú risavaxna fjárfesting sem við erum að ráðast í núna varðandi viðbyggingu við grunnskólann mun marka tímamót, sérstaklega í kennslu verk- og listgreina. Engu að síður er rétt að staldra við og hrósa.
Á þessari mynd má sjá nýja viðbyggingu við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Um er að ræða um 1500 m2 nýja aðstöðu þar sem sérstaklega er hugað að verklegum greinum
Samfélag sem byggir svona sterkan grunn undir börnin sín er samfélag sem á bjarta framtíð. Það er framtíð sem við í Ölfusi ætlum að halda áfram að fjárfesta í.
Til hamingju nemendur og kennarar við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Þið eruð að standa ykkur frábærlega.