Hækkun stýrivaxta um 0,25% hækkaði húsnæðislán almennings um 5 til 6 þúsund milljónir, takk fyrir túkall.
Takk fyrir túkall, er gamalt gott íslenskt orðatiltæki sem stundum er notað þegar einhver gerir eitthvað sem er ekki sérstaklega verðmætt eða gott. Ekki hvað síst ef það gegnur fram af fólki. Hagstjórnin hér á landi verðskuldar eitt gott: “Takk fyrir túkall”.
Í morgun hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti um 0,25%. Fyrir suma hljómar það eins og lítið tæknilegt skref í hagstjórn. Fyrir íslensk heimili er þetta hins vegar mjög raunverulegt.
Hin venjulega íslenska fjölskylda er að reyna að bjarga heimilum sýnum við erfiðar aðstæður.
Fyrir þau þýðir þetta að afborganir af húsnæðislánum hækkuðu um fimm- til sexþúsund milljónir á ári. Fimm til sex þúsund milljónir teknar úr vösum fjölskyldna, ungs fólks og þeirra sem eru að reyna að halda heimilisbókhaldinu saman.
Ákvarðanir Seðlabankans eru afleiðing hagstjórnarinnar. Ríkisstjórn sem heldur áfram að dæla eldsneyti á hagkerfið með auknum útgjöldum og þenslu gerir bankanum erfiðara fyrir að ná niður verðbólgu án vaxtahækkana. Seðlankinn er hitamælarinn í pottinum sem hið opinbera kyndir undir.
Á meðan hið opinbera heldur áfram að þenja út kerfið án þess að stuðla að verðmætasköpun sitja heimilin og fyrirtækin eftir með reikninginn. Auknar álögur auka skaðann. Fyrir þau eru þetta ekki skýrslur eða glærukynningar. Þetta eru hærri afborganir, minni ráðstöfunartekjur og aukið álag á venjulegt fólk. Þetta eru minni lífgæði og skert framtíð barna okkar.
Það er þess vegna sem ábyrg hagstjórn skiptir máli. Þegar stjórnvöld missa taktinn borga heimilin verðið.