Íslandsbanki gegn karlmönnum og plasti
Fulltrúar Íslandsbanka stigu fram í morgun og lýstu því yfir að bankinn muni hætta viðskiptum við þá fjölmiðla sem ekki standast tiltekin skilyrði sem snúa að kynjahlutfalli hvað varðar þáttagerðamenn og viðmælendur. Þetta gerir bankinn að sögn í þágu jafnréttismála.
Nú er það svo að allir, eða að minnsta kosti vel flestir, telja sig talsmenn jafnréttis. Ekki verður þó hjá því litið hér er langt seilst í baráttunni...
.... enda fjármálastofnanir stór kaupandi auglýsinga. Fast er að orði kveðið hjá bankanum og baráttunni gegn því að fjölmiðlar hafi fleiri karla en konur í vinnu er líkt við baráttu við eina stærstu vá sem mannkynið stendur frami fyrir – baráttu gegn plasti í náttúrunni.
Það sem þó vekur sérstaka athyli mína við þetta er sú staðreynd að samkvæmt Samfélagsskýrslu Íslandsbanka frá árinu 2016 voru konur 64% af starfsmönnum Íslandsbanka. Á landsbyggðinni voru konur 74% af starfmönnum bankans. Nýrri samfélagsskýrslu fann ég ekki á netinu en hlýt að trúa því að bankinn minn hafi sjálfur tryggt jafnt kynjahlufall áður en hann ræðst gegn ójöfnu kynjahlutfalli fjölmiðla.