Ítrekað verði bent á þörfina fyrir úrbætur

Ég hef í langan tíma verið áhugamaður um Einar Ben., líf hans, og skáldskap. Einn af uppáhaldsstöðum mínum hér á landi er því Herdísarvík hér í Ölfusi og bær sá er Einar byggði og dvaldi í seinustu ævi ár sín.  

Ég óttast mjög að óveður það sem nú er von á geti unnið óbætanlegt tjón á bæjarstæðinu og húsinu sjálfu. Áhlaðandi verður mikill, sjávarstaða há og öldugangur verulegur. Hætta er á að aldan gangi á land með fyrrgreindum afleiðingum.

Sveitarfélagið og velunnarar sögu Einars hafa ítrekað bent á þessa hættu en illu heilli hefur hvorki ríkið sem eigandi jarðarinnar og hússins, né Vegagerðin haft tök á að grípa til aðgerða svo sem að auka grjótvörn og sinna viðhaldi á húsinu.

Enn eitt óveðrið verðum við því að vona hið besta. Með hverju óveðrinu sem við bætist aukast líkurnar á óbætanlegum skaða.   Það er mikilvægt að fyrr en seinna axli ríkið þá ábyrgð sem því fylgir að gæta að náttúru- og menningarverðmætum eins og þarna eru.

Previous
Previous

Allir eru ósáttir, allir þurfa meira

Next
Next

47 ár frá upphafi gosins í Vestmannaeyjum