Ætlar ríkisstjórnin að klúfa samstöðuna?

Undir styrkri forystu Almars Guðmundssonar nýs formanns tók landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga mikilvæga ákvörðun í gær: Sveitarfélögin ætla að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á næsta ári. Þetta er í samræmi við stefnu okkar hér í Ölfusi og kemur í kjölfarið á ákvörðun okkar um gjaldfrjálsan leikskóla, lækkun álagningahlutfalls fasteignagjalda og hækkunar á tómstundastyrkjum. Nú er röðin komin að ríkisstjórninni.

Verkalýðsforystan hefur tekið frumkvæði sveitarfélaganna afar vel. Sú tilraun verður að engu ef ríkisstjórnin skilar auðu.

Svo fremi sem ríkið víki frá boðuðum skatta- og gjaldskrárhækkunum er hér ekki um neitt smáræði að ræða.

Um 2.000 milljarðar króna af húsnæðislánum heimilanna eru verðtryggðir. Hvert prósent sem bætist við vísitölu neysluverðs leggur þá um 20 milljarða króna á höfuðstól lánanna. Fyrir heimili með 60 milljóna króna verðtryggt lán eru það 600 þúsund krónur. Reikningurinn hverfur ekki þótt greiðslunum sé dreift yfir mörg ár.

Við sáum dæmi um þetta í janúar. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hækkun á opinberum gjöldum tengdum ökutækjum skýrðu um 0,3 prósentustig af hækkun vísitölunnar, samkvæmt mati fjármálaráðuneytisins. Á 60 milljóna króna verðtryggðu láni jafngildir slík vísitöluhækkun 180 þúsund krónum. Stjórnvöld geta ekki sagst berjast gegn verðbólgu með annarri hendinni og hækkað reikninga heimilanna með hinni.

Sveitarfélögin hafa nú sýnt vilja til verka. Ég tek undir kröfu Vilhjálms Birgissonar verkalýðsleiðtoga: Ríkisstjórnin á tafarlaus að lýsa því yfir að gjaldskrár og álögur ríkisins sem snerta heimilin hækki ekki um meira en 2,5% árið 2027. Kílómetragjaldið verður að vera þar með. Verslun og þjónusta þurfa líka að leggja sitt af mörkum.

Heimilin eiga heimtingu á að ríkið fylgi sveitarfélögunum. Þau vilja sjá þann vilja í heimilisbókhaldinu.

 

Next
Next

Verður Guðlaugur Þór Evrópumeistari í ballett?