Nýr miðbær í Þorlákshöfn. (myndir)

Í dag kl. 17:30 verður haldinn íbúafundur um nýjan miðbæ í Þorlákshöfn. Þar verða kynnt drög að hönnun miðbæjarins, húsagerð, skipulagi og fl. Þá verður einnig rætt um væntingar heimamanna, reynslu af miðbænum á Selfossi og fl. Fundurinn fer fram í Versölum og eru allir velkomnir.

Þau Grétar Ingi, Margrét Blöndal, Björn Guðmundsson og Hjalti Jón munu hafa framsögu á íbúafundinum

Byggður verður menningasalur í miðbænum

Á forsendum þeirrar verðmætasköpunar sem nú er unnið að Ölfusi skapast tækifæri til að auka velferð íbúa. Samhliða byggingu miðbæjarins horfir sveitarfélagið til þess að byggja menningarsal sem hýst getur hvers konar menningarviðburði. Menningarsalnum er ætlað að gegna kjölfestu hlutverki í að efla samfélagsvitund og félagsleg tengsl. Með því að vera sameiginlegur staður fyrir skapandi starfsemi eykur hann möguleika íbúa á að koma saman, skiptast á hugmyndum og njóta fjölbreyttrar listalífs. Hann er því ekki einungis vettvangur fyrir afþreyingu, heldur einnig fyrir menningarlega þróun, aukna tengingu milli íbúa og aukin gæði í lífi bæjarbúa.

Miðbærinn mun skapa ný og aukin tækifæri til uppbyggjandi samveru.

Skautasvell og aðstaða fyrir tónleika

Við hönnun miðbæjarins hefur verið lögð áhersla á að minna á sérstöðu Þorlákshafnar á Suðurlandi sem vaxandi sjávarbyggðar sem bíður upp á mikla þjónustu við íbúa og gesti. Þannig er gert ráð fyrir þeim möguleika að hægt verði að vera með skautasvell á veturnar á miðbæjartorginu og tónleika á sumrin. Víða eru bekkir, gróður, manir og fl. sem skapa hlýlegt og notalegt yfirbragð.

Skautasvellið verður einstakt á landsvísu.

Verslanir, veitingastaðir, þjónusta og menning

Sterkur miðbær er hjartað í litlum bæjum með stóra sál. Hann þjónar sem samkomustaður fyrir íbúa og gesti og stuðlar að blómstrandi mannlífi, verslun,veitingaþjónustu og menningu. Fyrir verslun er miðbærinn mikilvægur þar sem hann býður upp á vettvang fyrir fjölbreytta þjónustu- og verslunarframboð, sem getur laðað að bæði heimamenn og ferðamenn. Menningarlega séð hefur vel heppnaður miðbær burði til að verða vettvangur fyrir viðburði, listir og menningu. Þetta eykur menningarvitund íbúa og stuðlar að fjölbreytni í bæjarlífinu.

Horft í átt að Selvogsbraut.

Í heildina er sterkur miðbær ómissandi fyrir heildarvelferð lítils bæjar, þar sem hann sameinar fólk, eflir efnahag og stuðlar að lifandi menningu. Meðal annars þannig fá íbúar aukna velferð á grunni þeirrar verðmætasköpunar sem nú er unnið að.

Previous
Previous

Skemmtilegir frambjóðendur, nokkur dæmi.

Next
Next

Frelsi einstaklingsins tryggir best hagsmuni almennings