Ríkisstjórnin á brauðfótum, Kristrún daðrar við Miðflokkinn

Það hriktir í á stjórnarheimilinu. Viðreisn tapar fylgi. Flokkur fólksins tapar trausti. Samfylkingin ræður illa við þingstörfin. Stór mál sitja föst. Evrópuþráhyggja Viðreisnar er ekki Kristrúnu að skapi og gengur hreinlega lóðbeint gegn stefnu Flokks fólksins. Samgönguáætlun mun valda miklum deilum, fjárlög eru ávísun á verðbólgu, atvinnuleysi er að vaxa. Allt bendir til þess að stjórnarsamstarfið sé vart á vetur setjandi.

Í vanda sínum, daðrar Kristún við samstarf við Sigmund Davíð og Miðflokkinn.

Skjallbandalag Valkyrjanna er slíkt að það minnir á kökuboð þar sem allir hrósa kökunni en enginn vill borða hana. Tálsýnin er borin á borð  með frösum á borð við „verðmætasköpunarhaust“ og „verkstjórn“. Allt innantómt blaður.

Kristrún hefur sýnt að hún er einbeittur pólitíkus. Hún veit sem er að það eru fleiri kostir í boði en vonlaust samstarf þessara þriggja flokka. Veiki hlekkurinn er Flokkur fólksins. Honum væri hægt að skipta út fyrir Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk. Sá síðarnefndi mun ekki á ný ganga inn í vinstriríkisstjórn, hann er þeirri reynslu ríkari. Kostur Kristrúnar er því Miðflokkurinn.

Allt þetta veit Kristrún. Hún veit líka að til þess að halda stjórn á ríkisstjórn sinni þarf hún í það minnsta að láta glitta í mögulega ríkisstjórn með Miðflokknum. Hún þarf að hræða samstarfsflokkana til hlýðni.

Það er þess vegna, og eingöngu þess vegna, sem hún lætur hafa eftir sér að Samfylkingin og Miðflokkurinn geti náð saman í útlendingamálum. Eftir stendur hvort þetta dugar til að hirta Ingu og Þorgerði til undirgefni. Þá vakna spurningar um það hvort að þingmenn eins og Ása Berglind, Dagbjört, Dagur B. og fl. séu til í að skrifa upp á þetta heilbrigðisvottorð sem Kristrún gefur stefnu Miðflokksins í þessu máli.

Að lokum verður ánægjulegt að heyra svar Sigmunar Davíð og Snorra Mássonar og annarra vopna fimra þingmanna við þessu daðri . Ekki síður verður áhugavert að sjá hvernig Miðflokksmenn koma til með að nýta sér þennan óvænta stuðning við stefnu sem áður þótti umdeild.

Já, hún er áhugaverð tík, þessi pólitík.

(ath. mynd með grein er búin til af gervigreind)

Previous
Previous

Ull og hör: Óvænt gagnrýni á samfélagsmiðla og stjórnmál

Next
Next

Þorláksmessa og Þorlákshöfn