Ársfundur Ölfus Cluster - Framtíðin í Ölfusi er ekki bara vonandi – hún er þegar hafin!


Það er líf og fjör í Ölfusi! Núna í morgun héldum við fjórða ársfund Ölfus Cluster og hafi einhver efast um mikilvægi Ölfus Cluster fyrir samfélagið þá var þeim vafa snarlega eytt. Fundurinn var vel sóttur, bæði í raun- og netheimum.

Fjórði ársfundur Ölfus Cluster fór fram í morgun - baklandið í fyrirtækjunum hér heima í héraði er hornsteinn starfsins.

Skýrsla stjórnar Ölfus Cluster fyrir árið 2024 sýnir skýrt að samfélagið hér er að vaxa, tækifærum að fjölga og hagur að vænkast. Þekkingarsetrið, sem nú fagnar sínu fjórða starfsári, hefur fest sig í sessi sem lykilaðili í eflingu atvinnulífs og nýsköpunar á svæðinu. Verkefnin eru fjölbreytt og spanna allt frá þauleldi á laxi, framleiðslu á matarlit úr smáþörungum, drykkjarvörum, millilanda siglingum, ferðaþjónustu, orkuöflunar og svo margt annað. Heildarfjárfestingar á bak við þessi verkefni telja í hunduðum milljarða. Öll eiga verkefnin það sammerkt að stuðla að verðmætasköpun og fjölbreyttu og sjálfbæru atvinnulífi. Á forsendum verðmætasköpunarinnar verður svo velferðin til.

Fjárhagslega gengur reksturinn líka mjög vel og þar skiptir ekki litlu sá stuðningur sem Guðlaugur Þór fyrrverandi orku- og auðlindaráðherra sýndi Ölfus Cluster í verki. Burðarársin eru svo fyrirtækin hér í Ölfusi og auðvitað sveitarfélagið.

Skrifað undir samning um þróun grænnar atvinnuuppbyggingar í Ölfusi. 

Sérstaka athygli á fundinum i morgun vakti þátttaka Ölfus Cluster í stofnun Hydros Ölfus ehf, þar sem sjálfbær nýting vatnsauðlinda er sett í forgang. Þá eru einnig spennandi skref í undirbúningi með Carbfix, þar sem stórt tækifæri liggur í loftinu með mögulegri niðurdælingarstöð í Þorlákshöfn – verkefni sem gæti umbreytt framtíð hafnarinnar.

Góðar umræður sköpuðust á fundinum sem mótaðist fyrst og fremst af sóknarhug, áræðni og krafti.

Fyrir fimm árum vorum við hjá Ölfus Cluster svo heppin að fá til liðs við okkur Pál Marvin Jónsson sem núna er framkvæmdastjóri. Það er ekki annað en hreint út sagt kraftaverkavinna sem hann hefur leitt á seinustu árum! Verkefnastaðan er núna sterk, framtíðin björt og andinn uppbyggilegur. Með samstilltu átaki stjórnenda og starfsfólks er Ölfus Cluster ses. að ryðja veginn fyrir næstu stóru skref.

Til að fylgja þessu eftir hefur nú verið óskað eftir nýjum starfsmanni og bárust 14 umsóknir um starf verkefnastjóra. Stjórnar bíður nú það verkefni að velja úr hópi hæfra umsækenda og vonandi verður hægt að greina frá nafni nýs starfsmanns á næstu dögum.

Stjórn er skipuð fólki með fjölbreytta reynslu og menntun.

Eins og lög félagsins gera ráð fyrir var kosið í stjórn Ölfus Cluster og í þetta skipti var nokkur breytinga á. Úr stjórn fóru þau Jóhannes Gíslason (Geo Salmo) og Áshildur Bragadóttir (Landbúnaðarháskólanum). Þeirra í stað koma inn Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri (Orka Náttúrunnar) og Helga Kristín Jóhannsdóttir viðskiptaþróunarstjóri (Orka Náttúrunnar). Þess má einnig geta að ársfundur samþykkti að laun fyrir stjórnarsetu væru þau sömu og seinustu fjögur ár, núll krónur á mánuði.


Framtíðin í Ölfusi er ekki bara vonandi – hún er þegar hafin!

Next
Next

Er líf okkar betra?