Sókn og samheldni – Ölfus í anda lýðveldisins 1944
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní varð ekki til úr engu. Hann varð til vegna þess að forfeður okkar trúðu því að Íslandi byggi yfir tækifærum og þeir sem landið byggja gætu búið við aukna velferð. Þeir trúðu því að við Íslendingar gætum búið til verðmæti og byggt á því velsæld. Þessi dagur er til marks um þann dug og þá djörfu framtíðarsýn sem fylgdi stofnun lýðveldisins árið 1944. Í kjölfar sjálfstæðis lýstu Íslendingar því yfir að þeir ætluðu að byggja upp samfélag sem væri sterkt, frjálst og þannig stjórnað að almenningur byggi við velferð – samfélag sem þjónar fólkinu sem það byggir. Við það var sannarlega staðið.
Sveitarfélagið Ölfus stendur í dag sem lifandi dæmi um þá sýn í verki. Á síðustu árum höfum við orðið vitni að örum vexti og blómlegri þróun. Íbúafjölgun hefur verið stöðug og skýr vísbending um traust til samfélagsins okkar, náttúrunnar sem umlykur okkur og þjónustuna sem við veitum.
Við höfum sótt á styrkleika okkar og ekki hörfað þegar að okkur hefur verið sótt. Við höfum stutt við bakið á verðmætaskapandi verkefnum og nýtt þau sem grunn að velferð íbúa. Við höfum lækkað álögur á íbúa og aukið þjónustu við þá – með ábyrgri fjármálastjórn höfum við skapað rými til að létta undir með heimilum. Á sama tíma höfum við aukið þjónustu við börn, eldri borgara og fjölskyldur, bætt aðgengi og hlustað á þarfir fólksins okkar.
Öflug verkefni í atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun hafa verið, eru og munu verða á dagskrá – hvort sem það er í laxeldi á landi, ferðaþjónustu, iðnaði eða nýsköpun. Ölfus er orðið leiðandi afl í uppbyggingu framtíðar á Suðurlandi.
Í anda þeirra sem ákváðu að Ísland skyldi vera frjálst og fullvalda ríki árið 1944, stöndum við vörð um styrk samfélagsins okkar og velferð íbúa. Við byggjum á traustum grunni þeirra sem vörðuðu leið okkar góða samfélags. Við, fólkið sem hér búum höfum augun á framtíðinni – fyrir fólkið okkar og næstu kynslóðir.
Til hamingju með daginn – til hamingju með Ísland.