Um haturspóst og pólitískan rétttrúnað - meira um stuðning við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
Fyrir viku lýsti ég yfir stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Ég sagði sem var að hún hefði minn fulla stuðning í þessu máli sem kallað hefur verið lekamálið enda hefði ekkert hingað til komið fram sem bendir til þess að hún hafi brotið lög eða brugðist embættisskyldum sínum. Viðbörgðin urðu nokkur. Eins og búast mátti við hófst hefðbundið kvak á kommentakerfi DV og víðar. Lagt var til að gefa Rússum Vestmannaeyjar enda Eyjamenn „helvítis asnar“ sem eiga að skila kvótanum, ég sjálfur dæmdur rugludallur og Sjálfstæðisflokkurinn sagður „spilltur“ og „ógeðslegur“. Allt nokkuð fyrirsjáanlegt og eingöngu...
...lýsandi fyrir fólkið sem þar talar.
Ég tek hinsvegar meira mark á þeim tölvupóstum, símölum og einkaskilaboðum sem ég fékk. Ég tel mig ekki brjóta neinn trúnað þótt ég deili hluta þeirra með ykkur á maðan slíkt verður nafnlaust.
Mér finnst hinsvegar sem sumir þessara pósta kasti ljósi á málið allt og meðferð þess.
Þú verður tekin niður.
Tölvupóstarnir og einkaskilaboðin voru í þetta skipti í tugum. Sennilega hef ég ekki fengið jafn marga haturspósta (hate mails) frá því að ég velti upp þeirri spurningu hvort rétt væri að hagræða meira í því sem snýr að menningu og listum. Þá sem nú voru orðin hvöss. Einn hótaði að gera það að markmiði sínu að „taka mig niður“ ef ég héldi ekki kjafti. Annar sagði að „...hún [Hanna Birna] verður nú afhjúpuð sem hluti af þeim flokki sem felldi Ísland“. Nafnkunnur penni benti á að ég ætti að hafa vit á því að halda mig til hlés ef ég myndi ekki vilja „....verða undir þeirri sömu öldu og kom Sjálfstæðisflokknum út úr þinghúsinu í hruninu“. Nokkrir lýstu svo yfir vonbrigðum með hvað ég sé mikill hrokagikkur, hálfviti, kjáni og/eða siðblindingi.
Þakkir
Enn aðrir fóru mildari höndum um mig. Sumir þökkuðu mér jafnvel fyrir hugrekkið. Aðrir töldu nær fyrir mig að taka þátt í því að fá Sjálfstæðisflokkinn til að sýna iðrun, slíks væri enda þörf þar sem flokkurinn hafi ekki enn „gert upp hrunið“. Nokkrir sögðust vera að íhuga að lýsa einnig yfir stuðningi við Hönnu Birnu en væru ekki vissir þar sem þeir vildu ekki kalla yfir sig reiði DV og/eða annarra. „Ég þarf náttúrlega að hugsa um mína stöðu sem....“ sagði ein. Ég skyldi hana vel.
Hvar var þá pólitíski rétttrúnaðurinn?
Ég er hugsi um stöðu þjóðfélagsumræðunnar. Hvort að undir niðri ráði ákveðin fyrirlitning á Sjálfstæðisflokknum för hjá sumum. Það á að minnsta kosti við um einn þeirra blaðamanna sem mest hefur skrifað um „lekamálið“. (sjá hér) . Hvort það geti verið að aðrar kröfur séu gerðar til Sjálfstæðismanna en annarra ráðherra? Hvar var allur pólitíski rétttrúnaðurinn þegar Ögmundur Jónasson hafði bein afskipti af rannsókn lögreglu? (Sjá hér). Hvar var krafan um afsögn þegar Jóhanna braut jafnréttislög? (Sjá hér). Hvar var krafan um pólitíska ábyrgð þegar umboðsmaður alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Jón Bjarnason hefði brotið lög við úthlutun á makríl? (Sjá hér) . Hvar voru pólitískir krossar brenndir þegar Svandís Svavarsdóttir braut lög í ráðherratíð sinni sem umhverfisráðherra? (Sjá hér).
Þegar um er að ræða ráðherra Sjálfstæðisflokksins dugar hinvegar að einhverjir starfmenn ráðuneytis liggi undir grun til að krafist sé afsagnar.
Spyr sá sem ekki veit
Eins og ég hef áður sagt þá tel ég að hingað til hafi ekkert í þessu máli verið þess eðlis að Hanna Birna Kristjánsdóttir ætti að segja af sér. Ekkert hefur hingað til komið fram sem bendir til þess að hún hafi brotið lög eða brugðist embættisskyldum sínum. Enginn grunur er um að Hanna Birna hafi sjálf lekið gögnum. Enginn grunur er um að Hanna Birna hafi vitað af því að minnisblaðinu var dreift. Allt tal um að ráðherra hafi beitt lögreglustjóra þrýstingi hefur verið borið til baka af lögreglustjóranum sjálfum. Engu að síður er krafist afsagnar. Af hverju ætli það sé? Spyr sá sem ekki veit.