Fraterinn: Varaformaður sem er allskonar.
Að velja á leiðtoga fyrir Sjálfstæðisflokkinn er ábyrgðarhlutverk. Flokkurinn sá hefur borið höfuð og herðar yfir alla aðra stjórnmálarflokka á þeim hart nær 100 árum frá því hann var stofnaður. Lífsgæði þjóðarinnar urðu til undir styrkri stjórn Sjálfstæðisflokksins. Þar skipti ekki litlu sú gæfa sem flokkurinn hefur borið þegar kemur að því að velja sér afburðar leiðtoga.
Á komandi landsfundi stöndum við Sjálfstæðisfólk frammi fyrir því að i framboði er margt gott fólk. Við sem sækjum landsfund búum því við þá gæfu að geta haldið með einum frambjóðanda án þess að vera á móti hinum.
Fáa þekki ég jafn góða menn, og enga betri.
Í kjöri til varaformanns er vinur minn Jens Garðar Helgason. Fáa þekki ég jafn góða menn og enga betri. Jenni, eins og hann er oftast kallaður, er að mögu leiti sniðmát leiðtoga Sjálfstæðisflokksins. Hann spannar það litróf mannlísfins sem Sjálfstæðisflokkurinn vill sinna.
Jenni er alinn upp á alþýðuheimili á Eskifirði en elskar einlægt hrynjanda stórborga. Hann mærir sinn kyrrláta fjörð en þrífst jafn vel á forðudiskói á Ibiza. Aldrei starfað sem opinber starfsmaður en skilur öðrum betur mikilvægi öryggisnets samfélagsins. Manna skemmtilegastur, skilningsríkur á tilfinningar, hjálpsamur, velviljaður, greindur, ljúfur að lunderni en harður í horn að taka þegar slíkt á við. Hæfir jafn vel í kaffibolla í beituskúr á Bolungavík og í bröns á Bessastöðum. Þannig er Jenni. Hann er allra, hann er allskonar.
Gæinn er allra, hann er allskonar
Mig langar að skora á fólk að kjósa Jenna til varaformanns en ætla ekki að gera það. Ég ætla að skora á landsfundargesti að gefa sig á tal við hann í aðdraganda landsfundar og á fundinum. Gefa sér örstutta stund í að kynnast manninum og fyrir hverju hann stendur. Ég veit að í kjölfar þess kýs fólk Jens Garðar Helgason sem formann. Það mun ég gera.
(fun fact: Vinir Jenna kalla hann oft „Fraterinn“ eða „Jens Frater“. Orðið „Frater“ er latína og merkir „bróðir“. Nafgiftin er sótt í 19. aldar guðfræðinginn Magnús Frater sem ku hafa fengið nafnið þar sem allir sem kynntust honum urðu sem bræður hans og það sem meira er bræður hvers annars.)