
Hérna má finna það allra helsta og nýjasta frá mér
Fyrirtæki frá Vestmannaeyjum á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. Með betri samgöngum fjölgar þeim
Það er hverju samfélagi mikilvægt að atvinnulífið sé þar sterkt. Flest önnur starfsemi stendur og fellur með þeim árangri.
Göngugöng undir Löngu - Við eigum öll Vestmannaeyjar
Fram er komin hugmynd um að bora göng í gegnum neðri Kleifar í Heimakletti (Kleifaberg) og hafa þar göngugöng sem opna myndu aðgengi undir Löngu. Hugmyndin er skemmtileg og sannarlega er þar hugsað út fyrir boxið.
Heilbrigðisþjónusta í Vestmannaeyjum er ekki í samræmi við það sem faghópur ráðherra telur að þurfi
Heilbrigðisþjónusta í Vestmannaeyjum er í dag langt frá því sem hægt er að sætta sig við. Sú þjónusta sem nú er í boði er meira að segja fjarri því sem faghópur skipaður af ráðherra taldi að bjóða ætti upp á. Ábygðin á þessu liggur hjá þingmönnum og ráðherra. Úrbóta er þörf og það strax.
Málið sem ég ætlaði ekki að tjá mig um
Á seinustu vikum hefur verið nokkuð rætt og ritað um þá vinnu sem Illugi Gunnarsson vann og fékk greitt fyrir hjá Orku Energy þegar hann tók sér orlof frá þingmennsku.
Framkoma Gunnars Braga honum til skammar
Viðskiptabann á Rússa kemur illa niður á mörgum og því miður eru sterkar líkur fyrir því að þjóðarbúið allt komi til með að líða fyrir. Verst kemur það niður á sjávarbyggðum, íbúum þar og fyrirtækjum.
Allir ósáttir við kynferðislegt ofbeldi
Umræðan í kringum kynferðisbrot hefur verið hávær á seinustu vikum. Nokkuð hefur verið rætt og ritað um slík brot á útihátíðum og síst er það eitthvað til að kveinka sér undan, svo fremi sem slíkt sé gert á málefnalegan máta.
Færum skömmina á gerendur - vöndum umræðu um það alvarlega mein sem kynferðisofbeldi er
Allt ofbeldi er slæmt. Kynferðislegt ofbeldi er hreinn viðbjóður. Ekkert kemst nær morði. Ég á ekki nægilega sterk lýsingaorð til að fanga hug minn til kynferðislegs ofbeldis.
Ferðaþjónusta verður að vera í sátt við íbúa á ferðaþjónustusvæðum
Ferðaþjónusta er í dag mikilvæg atvinnugrein fyrir hið íslenska hagkerfi. Til landsins í fyrra komu 998.600 ferðamenn og fjölgaði þeim um 9,3%.
Er réttlætanlegt að líkja starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga við glæpasamtök sem meðal annars eru þekkt fyrir morð, vændi og mannsal?
Það er alvarlegt þegar formaður stjórnmálaflokks lýsir því yfir að eitt byggðarlag umfram önnur einkennist af spillingu og yfirgangi. Það gerði Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata þegar hún sagði að Skagafjörður væri „Sikiley Íslands“ og vísaði þar til þess að þar þrifist mafíustarf.
Slík þingkona er Birgitta Jónsdóttir
Píratar eru um margt merkilegur flokkur. Velgengni þeirra í skoðanarkönnunum hefur verið með miklum ágætum.
Nú er þörf á að virkja þennan vilja
Á Íslandi er deilt um laun. Útlit er fyrir hörðustu kjaradeilur í langan tíma.
Stétt með stétt
Á Íslandi varð hrun. Nánast eins og hendi væri veifað féll bankakerfið og eignir landsmanna gufuðu upp. Beinn kostnaður þjóðarinnar var um 748 milljarðar.
Maður orða sinna
Á seinustu dögum hafa fjölmiðlar réttilega hælt Sigurði Inga Jóhannssyni og hossað honum fyrir viðbrögð hans við niðurstöðu umboðsmanns Alþingis hvað varðar hið svokallaða Fiskistofumál.
Aldrei fleiri ferðir felldar niður
Ég birti hér nýtt yfirlit yfir frátafir í siglingum Herjólfs til Þorlákshafnar. Því miður var ég ekki með uppfærða töflu í pistlinum sem ég setti inn 13. mars og því vantaði inn 5 ferðir sem felldar voru niður í febrúar.
Yfirlit yfir frátafir í siglingum í Þorlákshöfn
Yfirstandandi vetur hefur verið umhleypingasamur. Það hefur eðlilega áhrif á sálartetrið og þyngir lund. Hornin verða hvassari og tannsteinarnir harðari.
Fullyrðingar sem ekki standast skoðun
Í dag hefur það víða verið fullyrt að ástæða þess að ferðir Herjólfs í vetur hafa oftar fallið niður það sem af er árs en áður sé að breytingarnar sem gerðar voru á skipinu í seinustu slipptöku hafi gert það verra í siglingum í Þorlákshöfn.
Betra er kál í koti en krás á herrasloti - um opinber störf
Miðað við þá umfjöllun sem verið hefur um flutning Fiskistofu norður á Akureyri mætti halda að í fyrsta skipti væri ríkið nú að flytja störf á milli atvinnusvæða. Svo er ekki.
Drottinn dauður og djöfullinn á neðstu hæð
Það er auðvelt að falla í þá gryfju að trúa því að heimurinn sé á leið til andskotans. Dæmin eru allstaðar.
Jólablað Fylkis
Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum á sér langa og merka sögu. Menningarlegt hlutverk starfsins er drýgra en margan kann að óra fyrir. Einn af hornsteinum starfs flokksins í Vestmannaeyjum er útgáfa á blaðinu Fylki.
Svar við skrifum Egils Helgasonar
Egill Helgason starfsmaður RÚV bregst við pistli mínum frá því í gær. Mér fannst því ekki úr vegi að bregðast við og fagna því að geta átt samskipti hann. Báðir eigum við að jú sameiginlegt að vera í þeim hópi sem ann RÚV.